Fotbolti.net
29.10.10 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Hilmar Rafn tekur við þjálfun Ýmis (Staðfest)

Leikmenn Ýmis fagna marki.

Leikmenn Ýmis fagna marki.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Vilhjálmur Siggeirsson

Hilmar Rafn Kristinsson hefur verið ráðinn þjálfari Ýmis sem er varalið HK og leikur í 3.deildinni. Þetta kemur fram á heimasíðu HK.

Hann tekur við liðinu af Ragnari Boga Pedersen sem hefur þjálfað Ými undanfarin ár.
Hilmar verður að auki hluti af þjálfararáði knattspyrnudeildar HK og mun vinna náið með Tómasi Inga Tómassyni, aðalþjálfara meistaraflokks karla, Kristófer Sigurgeirssyni aðstoðarþjálfara meistaraflokks og þjálfara 2. flokks karla, og Ragnari Gíslasyni, yfirþjálfara yngri flokka HK, að stefnumótun, markmiðssetningu og þróun þjálfunar innan knattspyrnudeildar félagsins.

Hilmar, sem er 29 ára gamall, á að baki langan og farsælan feril við þjálfun í yngri flokkum HK en hann hefur þjálfað í nánast öllum yngri flokkum félagsins frá árinu 1995 ásamt því að vera til langs tíma umsjónarmaður knattspyrnuskóla HK.

Hilmar var einnig leikmaður með HK og lék í meistaraflokki félagsins á árunum 1998-2004 og varð Íslandsmeistari með liðinu í 2. deild 2002 og í 3. deild 2001.

Heimild: Heimasíða HK

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.