Fotbolti.net
29.10.10 - 20:21
Magnús Már Einarsson

Andy O\'Brien til Leeds á láni (Staðfest)

Andy O\'Brien til Leeds á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson

Leeds United hefur fengið varnarmanninn Andy O\'Brien á láni frá Bolton Wanderers.
Þessi 31 árs gamli leikmaður verður á láni hjá Leeds í einn mánuð til að byrja með.

O\'Brien hefur verið úti í kuldanum hjá Bolton en hann hefur einungis leikið 42 mínútur á þessu tímabili.

Hann fær nú það verkefni að reyna að hjálpa Leeds með varnarleikinn en liðið hefur fengið fimmtán mörk á sig í síðustu fimm leikjum.

O\'Brien fer beint inn í leikmannahóp Leeds sem mætir Scunthorpe á morgun.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.