29.10.10 - 20:01
Magnús Már Einarsson
Andy Reid til Sheffield United á láni (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Sheffield United hefur fengið miðjumanninn Andy Reid á láni frá Sunderland.
Lánssamningurinn gildir í einn mánuð eða þar til í lok nóvember.
Lánssamningurinn gildir í einn mánuð eða þar til í lok nóvember.
Þessi 28 ára gamli leikmaður hefur ekki verið í byrjunarliði í neinum leik á þessu tímabili og hann tók því fegins hendi að fá að fara á láni.
Reid kom til Sunderland frá Charlton árið 2008 og hefur síðan skorað fjögur mörk í 68 deildarleikjum með liðinu.
Reid kom til Sunderland frá Charlton árið 2008 og hefur síðan skorað fjögur mörk í 68 deildarleikjum með liðinu.
Heimild: Sky
