29.10.10 - 16:32
Hafliði Breiðfjörð
Auðun Helgason spilandi aðstoðarþjálfari Selfoss (Staðfest)

Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl

Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl
Auðun Helgason hefur verið ráðinn spilandi aðstoðarþjálfari 1. deildarliðs Selfoss en hann skrifaði undir samning við félagið þessa efnis rétt í þessu.
Auðun verður því aðstoðarmaður Loga Ólafssonar sem var ráðinn þjálfari liðsins fyrr í mánuðinum og tók við af Guðmundu Benediktssyni.
Auðun lék með Grindavík í sumar en komst að samkomulagi við félagið á dögunum að rifta þeim samningi.
Hann skrifaði svo undir eins árs samning við Selfoss núna rétt í þessu en mikill hugur er í mönnum þar á bæ þó svo liðið hafi fallið úr Pepsi-deildinni í haust.
,,Ég held að liðið eigi raunhæfa möguleika á að komast aftur upp. Það býr það mikið í þessu liði að ég held að ef allir eru samtaka þá geti þetta lið farið upp,\" sagði Auðun við Fótbolta.net í dag.
Auðun Helgason er 36 ára gamall. Hann spilaði 23 leiki með Grindavík í deild og bikar í sumar og skoraði í þeim eitt mark. Hann hafði komið til félagsins fyrir tímabilið frá Fram þar sem hann hafði verið í tvö ár.
Hann hóf feril sinn með uppeldisfélagi sínu, FH, en hefur einnig leikið með Landskrona í Svíþjóð, Lokeren í Belgíu, Viking í Noregi, Neuchatel í Sviss og Leiftri á Ólafsfirði auk Fram og Grindavíkur. Hann hefur spilað 35 landsleiki fyrir Íslands hönd og skoraði í þeim eitt mark.
Rætt verður við Auðun í viðtali hér á Fótbolta.net á eftir.