Fotbolti.net
29.10.10 - 18:43
Hafliði Breiðfjörð

Andri Fannar Stefánsson í Val (Staðfest)

Andri Fannar Stefánsson í Val  (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Miðjumaðurinn Andri Fannar Stefánsson er genginn til liðs við Val og skrifaði undir þriggja ára samning við félagið rétt í þessu.

Andri Fannar sem kemur frá KA hefur verið nokkuð eftirsóttur síðan hann tilkynnti fyrr í mánuðinum að hann væri á förum frá uppeldisfélagi sínu og fjöldi félaga hafa reynt að næla í hann. Hann valdi svo að ganga til liðs við Val.
Andri Fannar Stefánsson er 19 ára gamall og hóf meistaraflokksferil sinn árið 2008 þegar hann spilaði 16 leiki með KA í deild og bikar.

Hann átti fast sæti í liði KA og spilaði 25 leiki fyrirliðið í deild og bikar í sumar og skoraði í þeim fimm mörk. Samtals hefur hann leikið 66 leiki með KA og skorað í þeim 11 mörk.

Hann er miðjumaður og hefur spilað 15 leiki með U17, U18 og U19 ára landsliðum Íslands.

Hann er þriðji leikmaðurinn sem gengur til liðs við Val eftir að tilkynnt var að Kristján Guðmundsson tæki við þjálfun liðsins. Áður hafði Guðjón Pétur Lýðsson komið frá Haukum og Halldór Kristinn Halldórsson úr Leikni.

Rætt verður við Andra Fannar og Friðjón R. Friðjónsson formann knattspyrnudeildar Vals hér á Fótbolta.net síðar í dag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.