29.10.11 - 11:41
Hafliði Breiðfjörð
Ragnar Leósson til ÍBV (Staðfest)

Ragnar Leósson er farinn til ÍBV.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ragnar Leósson er farinn til ÍBV.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Framherjinn Ragnar Leósson er genginn til liðs við ÍBV frá uppeldisfélagi sínu ÍA en þetta staðfesti ÍBV á vef sínum rétt í þessu.
Ragnar gerði þriggja ára samning við ÍBV og er annar leikmaðurinn sem gengur til liðs við félagið á viku því síðasta laugardag kom annar framherji, Eyþór Helgi Birgisson frá HK.
Ragnar Leósson er tvítugur og á að baki 16 leiki fyrir yngri landslið Íslands, 6 með U19 og 10 með U17.
Hann hefur leikið með meistaraflokki ÍA síðan liðið var í efstu deild árið 2007 og samtals 60 leiki fyrir félagið í deild og bikar og skorað 10 mörk.
ÍBV endaði í þriðja sæti Pepsi-deildarinnar á síðustu leiktíð en þjálfaraskipti hafa verði gerð hjá félaginu, Magnús Gylfason tók við af Heimi Hallgrímssyni.
ÍA eru nýliðar í deildinni eftir að hafa unnið 1. deild í sumar.

Heimild: Vefur ÍBV