Fotbolti.net
29.10.11 - 15:47
Hafliði Breiðfjörð

Reynir Leósson í Víking - Sigurður Egill áfram (Staðfest)

Reynir Leósson fagnar sigri með ÍA í 1.deildinni í sumar. Hann mun leika með Víkingi í sumar.

Reynir Leósson fagnar sigri með ÍA í 1.deildinni í sumar. Hann mun leika með Víkingi í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ingunn Hallgrímsdóttir

Víkingur sendi frá sér fréttatilkynningu rétt í þessu þar sem það var staðfest að Reynir Leósson sé genginn í raðir félagsins frá ÍA auk þess sem Sigurður Egill Lárusson verður áfram í herbúðum þeirra.
Reynir var lykilmaður í velgengni Skagamanna þegar liðið tryggði sér sæti í úrvalsdeildinni á nýloknu keppnistímabili og var að tímabilinu loknu valinn leikmaður ársins hjá félaginu. Reynir, sem er á 32. aldursári, hefur leikið 243 leiki með ÍA, Fram og Val í deild og bikar frá árinu 1996. Hjá Víkingi hittir hann fyrir Ólaf Þórðarson sem í dag þjálfar Víking en þjálfaði hann áður hjá ÍA.

Við sama tilefni skrifaði Sigurður Egill Lárusson undir nýjan tveggja ára samning við Víking. Sigurður sem er 19 ára gamall er einn af efnilegri leikmönnum félagsins oghefur nú þegar leikið 59 leiki með meistaraflokki félagsins í deild og bikar þrátt fyrir ungan aldur. Sigurður á að baki 17 landsleiki með U17 og U19 ára landsliðum Íslands.

Sigurður Egill hafði verið að hugsa sér til hreyfings og mikið verið orðaður við Val. Hann ákvað hinsvegar að vera áfram hjá Víkingi.

,,Það er sérstakt ánægjuefni fyrir Víking að Sigurður hafi kosið að sýna sínu uppeldisfélagi tryggð þrátt fyrir áhuga úrvalsdeildarliða á kröftum hans,\" sagði í yfirlýsingu Víkings.

,,Knattspyrnudeild Víkings býður Reyni velkominn og óskar Sigurði til hamingju með nýjan samning. Það er trú og von stjórnar félagsins að þessir tveir leikmenn verði félaginu mikilvægir í því verkefni sem er framundan við að koma félaginu á ný í úrvalsdeild.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.