Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 29. október 2020 11:00
Magnús Már Einarsson
Arnór Guðjohnsen: Hugleiðslan bjargaði mér eftir bílslysið
Ólýsanleg vonbrigði að ná ekki að spila landsleik með Eiði
Arnór Guðjohnsen.
Arnór Guðjohnsen.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Getty Images
Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson
Arnór Guðjohnsen er nýjasti gestur Sölva Tryggvasonar í podcasti Sölva. Arnór, sem er einn besti knattspyrnumaður Íslandssögunnar, segir í þættinum frá vonbrigðunum þegar Eiður sonur hans meiddist og í ljós kom að draumurinn um að þeir myndu byrja saman inn á í landsleik var úr sögunni:

„Ég sagði einhvern tíman frá því í belgísku sjónvarpsviðtali að þetta væri draumurinn. Þá var Eiður bara 9 ára, en maður sá í hvað stefndi hjá honum og ég hugsaði að þetta væri raunverulegur möguleiki ef ég væri þrjóskur og héldi lengi áfram. Eftir leikinn þar sem hann kom inn á fyrir mig fékk ég hringingar frá fjölmiðlum um allan heim. Kína, Bandaríkjunum og Evrópu. Þetta hefði orðið rosalegur viðburður ef við hefðum síðan byrjað saman inn á. Sá leikur átti að vera á heimavelli gegn Makedóníu mánuði síðar. En svo brotnar hann á milli þessarra leikja og ég get ekki lýst svekkelsinu almennilega, það var það mikið," sagði Arnór.

Kraftaverkalæknir á Húsavík lagaði meiðslin
Arnór var þarna enn á blússandi siglingu eftir að hafa náð að lengja ferilinn, sem hann þakkar að stórum hluta kraftaverkalækni á Húsavík: „Ég var búinn að vera meira og minna meiddur í 2 ár eftir að hafa rifið vinstri lærvöðva. Vöðvinn togaði meira að segja beinið með þegar hann rifnaði af því að hann var svo sterkur og rassbeinið togaðist frá. Svo er það þannig að ég er heima í sumarfríi og fer norður á Húsavík til ömmu og það fyrsta sem hún segir: „Nú ert þú að fara að hitta Einar lækni frænda þinn á Einarsstöðum. Hann er læknamiðill”. Mér leist mátulega vel á það, en lét slag standa. Þegar við bönkuðum á dyrnar kemur til dyra pínulítill maður sem var eins og álfur í útliti. En þegar hann tók í höndina á mér tók ég eftir því að hann var með risalúkur. Eftir smá spjall biður hann mig um að koma með sér inn í herbergi. Nóttina áður hafði mig dreymt draum þar sem ég ligg á skurðborði og yfir mér stumrar læknir með yfirvaraskegg. Ég sé síðan að á borðinu hjá Einari er mynd af þessum sama manni. Mér krossbrá og segi honum frá þessu og þá svarar hann: „Já, hann gerir svolítið í því að láta dreyma sig áður en fólk kemur til mín.”

„Þetta átti víst að vera einhver danskur læknir sem var látinn. Svo byrjar Einar þessi að leggja á mig hendur og er með hendurnar yfir mér í svona klukkutíma. Segir svo við mig að ég eigi að hugsa til hans í 5 mínútur næstu tvö kvöld og þá eigi þetta að vera komið. Ég man að ég hugsaði að ég yrði að skamma ömmu fyrir þessa vitleysu, en ég lét til leiðast og settist á stól næstu tvö kvöld og hugsaði til hans. Ég get svo svarið það að svona 2 dögum seinna voru allir verkir farnir eftir tveggja ára basl. Þetta vakti upp rosalegar spurningar hjá mér og breytti mér að vissu leyti.”

Allt frá þessu hefur Arnór verið mjög upptekinn af því hver stóran hlut andlegi þátturinn spilar og það hefur bara aukist. Arnór hefur nú þróað spilastokk sem tengist knattspyrnu sem er til þess fallinn að fá fólk til að gefa andlegu hliðinni gaum á hverjum degi. Hann segir í þættinum frá því hvernig hugleiðsla kom honum út úr þunglyndi sem hann var byrjaður að finna fyrir.

„Árið 2014 lendi ég í bílslysi. Ég braut 5 rifbein, vinstra hnéð fór í mask og aftara krossbandið og seinna í ferlinu kom svo í ljós að ég hafði brotið 2 hálsliði, sem uppgötvast ekki fyrr en ári seinna. Þetta fer að ágerast og svo kemur í ljós að hálsliðirnir hanga bara uppi á bólgum sem höfðu harðnað og þær fóru svo að þrýsta á mænuna. Það er haft samband við skurðlækni sem vill gera við þetta fljótt og lýsir því fyrir mér að ég verði settur í svæfingu og öndunarvél og ég hugsaði bara með mér að ég yrði að kveðja fólkið mitt. En þetta gekk vonum framar, en svo eftir aðgerðina er ég búinn að vera bara heima og er orðinn talsvert þunglyndur og sat bara uppi í sófa og horfði á sjónvarpið. Svo ýtir konan mín í mig og segir mér að fara að koma mér af stað, en það er ekki fyrr en ég byrja aftur að hugleiða sem ég fann að allt fór að fara í rétta átt. Fram að því hafði ég bara tengt þetta við fótboltann, en þarna fann ég að þetta jók sjálfstraustið og bætti líðan á allan hátt. Og það er eiginlega út af minni eigin reynslu sem ég vil vekja athygli á mikilvægi þess að skoða þennan þátt bæði hjá íþróttafólki og fólki almennt.”

Ferguson hafði áhuga á að fá Eið Smára
Í þættinum fara Arnór og Sölvi líka yfir tímann þegar Eiður, sonur hans fór til Barcelona.

„Ég talaði við Ferguson, sem hafði mikinn áhuga á að fá hann. Hann hringdi í mig og sagði: „Ef að strákur eins og Eiður er til sölu, þá er ég knúinn til að koma inn í dæmið. En þú og Eiður verðið að sjá um að búa til þannig þrýsting að hann fái að fara frá Chelsea yfir í Manchester United. En Barcelona kom inn það fljótt eftir þetta að það varð aldrei meira úr þessu. Um leið og það var komið inn á borðið gekk það hratt fyrir sig.”

Í Þættinum ræða Sölvi og Arnór um ótrúlegan feril Arnórs, hæðir og lægðir, þar sem inn komu sigurleikir gegn stórveldum Evrópu, erfið meiðsli, samningsleysi á tímum þar sem réttur leikmanna var nánast enginn og margt fleira. Í þættinum fara þeir einnig yfir mikilvægi andlega þáttarins í knattspyrnu og íþróttum, en Arnór vinnur nú hörðum höndum að verkefni sem því tengist.

Þáttinn í heild má sjá hér að neðan.

Athugasemdir
banner