Fotbolti.net
29.11.11 - 10:37
Magnús Már Einarsson

Pálmi Rafn Pálmason í Lilleström (Staðfest)

Pálmi Rafn Pálmason í Lilleström (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lilleström hefur fengið miðjumanninn Pálma Rafn Pálmason til liðs við sig frá Stabæk.

Pálmi Rafn hefur samþykkt þriggja ára samning við Lilleström en hann tekur gildi þegar núverandi samningur hans hjá Stabæk rennur út um áramót.
Pálmi er uppalinn hjá Völsungi en hann lék síðan með KA og Val áður en hann fór til Stabæk árið 2008. Þessi 27 ára gamli leikmaður skoraði átta mörk í 26 leikjum með Stabæk á nýliðnu tímabili.

,,Við erum ánægðir með að hann komi til okkar. Okkur hlakkar til að sjá hann í búningi LSK,\" sagði Torgeir Bjarman yfirmaður íþróttamála hjá Lilleström.

Hjá Lilleström hittir hann fyrir fleiri íslenska leikmenn en á nýliðnu tímabili spiluðu Björn Bergmann Sigurðarson, Stefán Gíslason og Stefán Logi Magnússon með liðinu.

Heimild: Heimasíða Lilleström

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.