Fotbolti.net
29.11.11 - 11:43
Magnús Már Einarsson

Orri Freyr Hjaltalín í Þór (Staðfest)

Orri Freyr Hjaltalín í Þór (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Þórsarar hafa fengið Orra Frey Hjaltalín til liðs við sig frá Grindavík. Félögin hafa komist að samkomulagi um félagaskiptin en Orri mun sjálfur skrifa undir samning við Þór á fimmtudag.
Þessi 31 árs gamli leikmaður er uppalinn hjá Þór en hann gekk í raðir Grindvíkinga árið 2004.

,,Það er frábært að fá Orra og þetta er liður í því að koma okkur aftur þangað sem við viljum vera,\" sagði Páll Viðar Gíslason þjálfari Þórs við Fótbolta.net í dag.

,,Þú finnur ekki betri karaktera en gamla alvöru Þórsara og hann er með flotta reynslu þannig að þetta er ekkert nema jákvætt. Við erum í skýjunum með þetta.\"

Orri Freyr á að baki 210 leiki í 1. og efstu deild með Þór og Grindavík og í þeim leikjum hefur hann skorað 37 mörk. Þar af eru 65 leikir með Þór og í þeim leikjum skoraði hann 26 mörk.

Auk þessa lék hann með Þór í 2. deild 1999 og 2000 og þar lék hann 32 leiki og skoraði 27 mörk þar sem hann var m.a. markakóngur í annarri deild sumarið 2000 með 20 mörk.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.