Fotbolti.net
29.11.11 - 19:35
Fótbolti.net

Markadrottningin verður áfram í Stjörnunni (Staðfest)

Ashley Bares mun leika með Stjörnunni á næsta ári.

Ashley Bares mun leika með Stjörnunni á næsta ári.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir

Kvennaboltinn
Framherjinn Ashley Bares hefur skrifað undir nýjan samning við Íslandsmeistara Stjörnunnar sem gildir fram yfir þátttöku liðsins í Meistaradeildinni á næsta ári.
Þetta verða að teljast gríðarlega góðar fréttir fyrir Garðabæjarliðið, en Bares var langmarkahæst í Pepsi deild kvenna á síðasta tímabili með 21 mark. Hún var valinn leikmaður fyrstu níu umferðanna á Fótbolta.net og átti stóran þátt í því að liðið varð Íslandsmeistari í fyrsta sinn.

,,Ashley gaf mjög sterkt til kynna fyrir lok síðasta keppnistímabils að hún hefði áhuga á að koma aftur, enda mjög ánægð með félagið, liðsfélagana og þjálfarana,\" sagði Einar Páll Tamimi, formaður meistaraflokksráðs kvenna hjá Stjörnunni við Fótbolta.net í dag.

,,Hún hefur eytt haustinu í fríi með fjölskyldu og vinum í Wisconsin en kemur aftur til Stjörnunnar í marsmánuði.\"

,,Við erum að sjálfsögðu gríðarlega sátt við endurkomu hennar, enda leitun að öðrum eins markaskorara í íslensku deildinni og jafnvel víðar.\"


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.