Liverpool vill fá Suarez - Bayern meðvitað um áhuga frá Sádi - Leikmaður Palace heillar stórlið - Barca býður lægri laun
   mán 30. mars 2026 17:27
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Jón Þór verður með Vestra í sumar
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það vakti athygli í gær þegar nafn Jóns Þórs Haukssonar var á skýrslu Vestra þegar Vestramenn heimsóttu Víkinga í Meistarakeppni KSÍ. Jón Þór stýrði Vestra í lokaleikjum síðasta tímabils og í kjölfarið tók Daniel Badu við sem aðalþjálfari liðsins.

En Jón Þór verður áfram hluti af þjálfarateymi bikarmeistaranna. Þetta staðfestir Samúel Samúelsson, sem er meðstjórnandi í stjórn Vestra, í samtali við Fótbolta.net.

Það er engin breyting á því að Daniel Badu er þjálfari liðsins en Jón Þór verður hluti af teyminu. Þeir báðir, Badu og Jón Þór, voru skráðir sem aðalþjálfarar Vestra í gær.

Vestri, sem féll úr Bestu deildinni síðasta haust, er á leið í Evrópukeppni í sumar, spilar a.m.k. fjóra Evrópuleki og þarf þjálfari liðsins að vera með UEFA Pro gráðuna. Jón Þór er með þá gráðu en Badu er ekki með hana.
Slapp
Athugasemdir
banner
banner