Bruno áfram á Old Trafford - Leao orðaður við Man Utd - Milan til í að skoða skipti
   fim 30. apríl 2026 10:19
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Alexander Veigar tekur við KV (Staðfest)
Alexander Veigar skrifar undir samninginn.
Alexander Veigar skrifar undir samninginn.
Mynd: KV
Alexander Veigar Þórarinsson hefur verið ráðinn nýr þjálfari KV og mun stýra liðinu í 3. deild karla í sumar.

Orri Fannar Þórisson og Davíð Guðrúnarson hættu sem þjálfarar KV í janúar síðastliðnum.

Tekur Alexander við starfinu af þeim. „KV býður Alexander velkominn í Vesturbæinn og hlökkum við til að sjá hann í boxinu á KV-park í sumar," segir í tilkynningu KV.

Alexander Veigar hefur átt flottan fótboltaferil þar sem hann hefur lengst af spilað með uppeldisfélagi sínu, Grindavík. Hann spilaði síðast með ÍH sumarið 2024 en var með Grindavík í Lengjudeildinni sumarið 2023.

Hann hefur einnig leikið fyrir Þrótt Reykjavík, BÍ, Fram og Reyni Sandgerði á sínum ferli.

Núna hefst þjálfaraferillinn en starfið hjá KV er hans fyrsta aðalþjálfarastarf í meistaraflokki.

KV endaði um miðja 3. deild með 28 stig úr 22 umferðum í fyrra. Nýtt tímabil hefst á laugardaginn.
Slapp
banner
banner
banner