30.06.10 - 13:39
Hörður Snævar Jónsson
David Silva til Manchester City (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Manchester City og Valencia hafa komist að samkomulagi um kaupverðið á David Silva og er hann genginn í raðir City.
Þessi snjalli kantmaður hefur skrifað undir fjögurra ára samning við City.
Þessi 24 ára gamli Spánverji er þessa dagana staddur í Suður Afríku þar sem hann spilar með liðinu á HM.
,,Fyrst vill ég þakka Valencia og stuðningsmönnum félagsins. Ég vil líka þakka liðsfélögum mínum og starfsfólki, ég hef notið þessa sex ára sem ég var hjá Valencia. Félagið bætti mig sem fótboltamann og þeir skipa alltaf sess í hjarta mínu,\" sagði Silva.
,,Tíminn er réttur til að leita af nýrri áskorun og ég er spenntur fyrir því að spila á Englandi og fyrir Manchester City. Ég tel ensku úrvalsdeildinni eina af þeim bestu í heiminum og ég vil ná árangri hjá City og vinna bikara.\"

Heimild: Sky