Fotbolti.net
30.06.10 - 13:50
Hafliði Breiðfjörð

Hollendingurinn Rabin Faber í Víking (Staðfest)

Rabin Faber ásamt Leifi Garðarssyni þjálfara Víkings í hádeginu í dag.

Rabin Faber ásamt Leifi Garðarssyni þjálfara Víkings í hádeginu í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

1. deildarlið Víkings hefur fengið liðsstyrk því hollenski varnarmaðurinn Rabin Faber gekk til liðs við félagið í dag og skrifaði undir samning í hádeginu.
Samningur hans við félagið tekur gildi 30. júní næstkomandi en félagaskiptaglugginn opnar 15. júlí og þá má hann hefja að leika með liðinu.

Faber sem er 24 ára gamall miðvörður semur út næstu leiktíð, til 30. september 2011.

Faber sem á að baki landsleiki með U17, U18 og U19 ára landsliðum Hollands kemur frá FC Eindhoven þar sem hann lék 20 leiki í næst efstu deild á síðustu leiktíð.

Hann hafði áður verið í leikmannahópi ADO Den Haag í hollensku úrvalsdeildinni tímabilið á undan og þar áður hjá Vitesse Arnheim. Hann var í akademíu PSV Einhoven árin 2004-2007.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.