30.06.10 - 20:44
Ívan Guðjón Baldursson
Javier Aguirre búinn að segja af sér (Staðfest)

Javier Aguirre á blaðamannafundi.

Mynd: Fótbolti.net - Gunnar Jarl Jónsson

Javier Aguirre er búinn að segja af sér sem landsliðsþjálfari Mexíkó eftir að liðið féll úr leik á HM í 16 liða úrslitum gegn Argentínu.
Mexíkó tapaði 3-1 gegn Argentínu eftir að hafa náð 2. sæti í A-Riðli með Frakklandi, Úrúgvæ og Suður-Afríku.

Í kjölfarið sagði Aguirre af sér sem þýðir að Mexíkó mun þurfa að finna nýjan þjálfara, eða þann fimmta á fimm árum.
,,Ég verð að fara, það er heiðarlegast að gera það. Allt sem ég gerði, gerði ég hugsandi um Mexíkó. Framtíðin er nú í höndum ungu leikmanna okkar.\"
Aguirre sagðist vilja að arftaki sinn myndi fá að stýra liðinu í fjögur ár fram að næstu Heimsmeistarakeppni og að hann sjálfur væri að draga sig í hlé frá þjálfun.
Aguirre tók fyrst við Mexíkó 2001 og komst úr riðli á HM 2002 en ekki lengra. Síðustu fimm keppnir sem Mexíkó hefur tekið þátt í hefur liðið komist í 16 liða úrslit en dottið þar út.

Heimild: Goal