30.07.10 - 14:50
Alexander Freyr Tamimi
Javier Garrido í Lazio (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Manchester City hefur tekist að losa sig við einn af þeim fjölmörgum leikmönnum sem þurfa að yfirgefa félagið vegna nýrrar reglu enska knattspyrnusambandsins, en vinstri bakvörðurinn Javier Garrido er genginn til liðs við Lazio.
Garrido kemur til ítalska úrvalsdeildarfélagsins sem staðgengill Aleksandar Kolarov sem fór hina leiðina fyrir stuttu síðan. Kaupin á Kolarov settu Garrido enn neðar í goggunarröðina hjá City og var hann í raun orðinn þriðji vinstri bakvörður liðsins á eftir Serbanum og Wayne Bridge.
Hinum spænska Garrido tókst aldrei að slá í gegn hjá City eftir að hafa komið til liðsins frá Real Sociedad árið 2007 og var hann alltaf líklegur til að yfirgefa félagið, sem má einungis velja 25 leikmenn til að taka þátt í ensku úrvalsdeildinni á komandi tímabili.

Heimild: Sky