Fotbolti.net
30.09.11 - 12:48
Magnús Már Einarsson

Manuel Almunia í West Ham (Staðfest)

Manuel Almunia í West Ham (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

West Ham United hefur fengið markvörðinn reynda Manuel Almunia á láni frá Arsenal.

Robert Green markvörður West Ham verður frá keppni næstu sex vikurnar vegna hnémeiðsla og því hefur Sam Allardyce ákveðið að fá Almunia á láni.
Hinn 34 ára gamli Almunia verður á láni hjá West Ham í mánuð en hann gæti leikið sinn fyrsta leik gegn Crystal Palace á morgun.

,,Við höfum verið á fullu í símanum og höfum náð frábærum samningi með að fá Manuel Almunia á láni frá Arsenal,\" sagði Stóri Sam.

,,Ég vil þakka Arsene Wenger og Arsenal kærlega fyrir að láta okkur fá svona reyndan markvörð til að fylla skarð Robert.\"

Heimild: Heimasíða West Ham

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.