Fotbolti.net
30.10.10 - 09:34
Hafliði Breiðfjörð

Ragna Björg Einarsdóttir í Breiðablik (Staðfest)

Ragna Björg í leik með Fylki gegn Breiðablik.

Ragna Björg í leik með Fylki gegn Breiðablik.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Kvennaboltinn
Varnarmaðurinn Ragna Björg Einarsdóttir er gengin til liðs við Breiðablik frá Fylki og hefur skrifað undir þriggja ára samning við Kópavogsliðið. Þetta staðfesti Einar Kristján Jónsson formaður knattspyrnudeildar Breiðabliks við Fótbolta.net í gær.
Ragna Björg er 24 ára gömul og hóf feril sinn hjá Breiðablik þegar hún lék þrjá leiki með Breiðablik 2 í 1. deildinni árið 2003.

Þremur árum síðar var hún lánuð til Þróttar og lék þar samtals 13 leiki í deild og bikar og skoraði eitt mark.

Þaðan fór hún til Fylkis árið 2007 og hefur verið þar síðan, samtals fjórar leiktíðir. Hún spilaði alla 20 leiki Fylkis í deild og bikar í sumar en hefur í heildina spilað 73 leiki fyrir Fylki og skorað 3 mörk.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.