Fotbolti.net
30.11.11 - 17:38
Magnús Már Einarsson

Hallgrímur Jónasson til SønderjyskE (Staðfest)

Hallgrímur Jónasson.

Hallgrímur Jónasson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson

Danska félagið SønderjyskE hefur gengið frá kaupum á Hallgrími Jónassyni en hann kemur frá GAIS í Svíþjóð.
Hallgrímur hefur verið í láni hjá SønderjyskE síðan í júlí og hann hefur nú skrifað undir þriggja ára samning við félagið.

Hallgrímur hefur staðið sig vel með SønderjyskE en liðið er sem stendur í níunda sæti af tólf liðum í Danmörku.

,,Við erum búnir að komast að samkomulagi um kaupverð við félag hans í Svíþjóð. Við gleðjumst einnig yfir því að hann hafi unnið sér sæti i A-landsliði Íslands eftir að hann skipti til okkar,\" sagði Ole Nielsen yfirmaður íþróttamála hjá Sønderjyske.

Hallgrímur skoraði glæsilegt mark í 5-3 tap Íslands gegn Portúgal í síðasta mánuði en samtals á hann þrjá landsleiki að baki.

Heimild: Heimasíða SønderjyskE

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.