Fotbolti.net
30.11.11 - 18:05
Elvar Geir Magnússon

Steve Bruce rekinn frá Sunderland (Staðfest)

Steve Bruce er ekki lengur við stjórnvölinn.

Steve Bruce er ekki lengur við stjórnvölinn.

Canon

Mynd: Getty Images

Steve Bruce er hættur sem knattspyrnustjóri Sunderland en það kemur fram í tilkynningu sem félagið var að senda frá sér rétt í þessu. Bruce var stjóri Wigan en tók við Sunderland 2009.
Ellis Short, stjórnarformaður Sunderland, segir í yfirlýsingunni að ákvörðunin hafi verið erfið og að síðustu vikur hafi verið félaginu þungar.

Þá er Bruce þakkað fyrir hans störf fyrir félagið en Eric Black, aðstoðarmaður hans, mun taka við stjórnartaumunum meðan leit stendur yfir að næsta knattspyrnustjóra.

Á sunnudagskvöld fóru af stað sögur um að reka ætti Bruce en Sunderland er tveimur stigum fyrir ofan fallsæti. Í kjölfarið hættu veðbankar að taka við veðmálum um hvaða úrvalsdeildarstjóri yrði rekinn fyrstur á tímabilinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.