31.05.10 - 11:28
Magnús Már Einarsson
Jose Mourinho tekur við Real Madrid (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Jose Mourinho tók í morgun formlega við þjálfun Real Madrid en hann kemur til félagsins frá Inter.
Þessi 47 ára gamli Portúgali skrifaði undir fjögurra ára samning við Real Madrid á fréttamannafundi hjá félaginu.
Mourinho tekur við liðinu af Manuel Pellegrini sem tókst ekki að landa titli á nýliðnu tímabili.
Mourinho náði aftur á móti frábærum árangri með Inter á tímabilinu en undir hans stjórn vann liðið ítölsku deildina, ítalska bikarinn og Meistaradeildina.
,,Við erum ánægðir með að hafa hann hér hjá okkur. Það besta fyrir félagið núna er að hafa Mourinho hjá okkur,\" sagði Jorge Valdano yfirmaður íþróttamála hjá Real Madrid á fréttamannafundinum í morgun.

Heimild: BBC