Fotbolti.net
31.05.10 - 11:39
Magnús Már Einarsson

Jermaine Beckford til Everton (Staðfest)

Jermaine Beckford til Everton (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Everton hefur gert fjögurra ára samning við framherjann Jermaine Beckford.
Þessi 26 ára gamli leikmaður yfirgaf Leeds í síðustu viku eftir að hafa verið hjá félaginu frá því 2006 en hann kemur frítt til Everton.

Beckford skoraði alls 85 mörk í 150 leikjum með Leeds en á nýliðnu tímabili hjálpaði hann liðinu að komast upp með því að skora 31 mark.

,,Ég er spenntur. Þetta er próf, ég veit það, en ég hlakka til,\" sagði Beckford.

,,David Moyes sýndi mér áhuga og sýndi mér traust, vonandi get ég borgað það til baka.\"

Heimild: Sporting Life

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.