Fotbolti.net
31.05.10 - 23:10
Magnús Már Einarsson

Páll Viðar Gíslason tekur við Þór (Staðfest)

Lárus Orri Sigurðsson og Páll Viðar Gíslason.

Lárus Orri Sigurðsson og Páll Viðar Gíslason.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Páll Viðar Gíslason hefur verið ráðinn þjálfari Þórs út tímabilið en hann tekur við liðinu af Lárusi Orra Sigurðssyni sem sagði upp störfum fyrr í kvöld.
Páll Viðar lék lengi með Þórsurum en hann hefur síðan verið aðstoðarþjálfari hjá liðinu undanfarin ár.

,,Hann er búinn að vera með Orra sem aðstoðarþjálfari og gjörþekkir þetta allt. Það er engin spurning að hann er góður maður,\" sagði Unnsteinn Einar Jónsson formaður knattspyrnudeildar Þórs við Fótbolta.net í kvöld.

Að sögn Unnsteins vonast Þórsarar eftir að framherjinn reyndi Hreinn Hringsson verði aðstoðarþjálfari en hann er að hugsa málið. Unnsteinn segir aftur á móti að það sé eftirsjá í Lárusi Orra sem var á sínu fimmta tímabili með Þór.

,,Þetta er hans ákvörðun. Við óskuðum þess ekki að hann myndi hætta og við vildum hafa hann áfram, það er alveg á hreinu.\"

Lárus Orri gagnrýndi aðalstjórn Þórs harðlega í viðtali á Fótbolta.net fyrr í mánuðinum og Unnsteinn segir það því að ákvörðun hans um að segja upp störfum hafi ekki komið á óvart.

,,Ekki eftir þetta sem kom upp á um daginn, þá lá í loftinu að þetta gæti farið svona.\"

Þórsarar hafa byrjað tímabilið ágætlega og eru með sjö stig í þriðja sætinu í fyrstu deildinni en liðið stefnir á að fara upp í Pepsi-deildina í sumar.

,,Við verðum að stefna áfram upp, það þýðir ekkert annað. Við látum verkin tala á vellinum, það er það sem þetta snýst um.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.