Ísland tapaði gegn Japan í æfingaleik ytra í dag. Leikurinn var ansi lokaður en Japan skoraði eina mark leiksins undir lokin.
Kjartan Atli Kjartansson, þáttastjórnandi á Sýn Sport, spurði sérfræðingana Kára Árnason og Bjarna Guðjónsson hvort einhver leikmaður hafi staðið upp úr í dag.
Kjartan Atli Kjartansson, þáttastjórnandi á Sýn Sport, spurði sérfræðingana Kára Árnason og Bjarna Guðjónsson hvort einhver leikmaður hafi staðið upp úr í dag.
Lestu um leikinn: Japan 1 - 0 Ísland
„Eins og við fórum yfir í hálfleik fannst mér Daníel (Leó Grétarsson) standa sig mjög vel. Við fáum nátturulega markið á okkur þegar hann er farinn út af," sagði Kári.
„Það kom ekkert á óvart. Daníel er varnarmaður og hann skilur hvar vandræðin eru og hvar hættan steðjar að. Hann er af gamla skólanum og gaman að hafa hann í þessu liði," sagði Bjarni.
Daniel Grétarsson startede inde og fik 85 minutter, da Island i dag mødte Japan i en træningskamp i Tokyo. Kort efter vores forsvarsspiller gik ud, scorede Japans Koki Ogawa kampens eneste mål.
— Sønderjyske Fodbold (@SJFodbold) May 31, 2026




