31.07.10 - 08:09
Hafliði Breiðfjörð
Freddie Ljungberg frá Seattle til Chicago Fire (Staðfest)

Ljungberg í íslenska landsliðsbúningnum.

Mynd: Fótbolti.net - Daníel Rúnarsson

Bandaríska félagið Seattle Sounders ákvað í gær að skipta við Chicago Fire á Freddie Ljungberg og valrétti fyrir MLS deildina 2011 eða 2012.
Lítið fór fyrir tilkynningunni um að félagið hafi sagt skilið við Svíann sem hefur ekki æft með liðinu í nokkrar vikur þar sem hann er að jafna sig á ökklameiðslum og æfir á eigin vegum.
Hann hafið komið til félagsins frá Arsenal í október árið 2008 með miklum glans en nú fór minna fyrir brottför hans.
Hann hefur lítið láti á sér bera að undanförnu og ekkert leikið með liðinu síðan 4. júlí síðastliðinn. Samningur hans átti að renna út í nóvember.
Hann hefur verið launahæsti leikmaður Seattle með 1,3 milljónir dollara fyrir tímabilið. Hann hefur pirrað liðsfélagana með því að mæta seint til æfinga og sagðist ekki vilja hefja æfingar fyrr en deildin hefði leyst deilur við leikmenn um launamál. Þá hafði Sigi Schmid þjálfari hans gagnrýnt hann fyrr á tímabilinu fyrir að tuða of mikið í dómurum.
Þó er ekki langt í að Ljungberg spili aftur í leik hjá Seattle því Chicago liðið leikur þar 28. ágúst næstkomandi.

Heimild: AP