31.07.10 - 07:34
Hafliði Breiðfjörð
Boaz Myhill til WBA (Staðfest)

Boaz Myhill.

Mynd: Getty Images

Boaz Myhill.

Mynd: Getty Images
WBA hefur gengið frá kaupum á welska landsliðsmarkverðinum Boaz Myhill en hann kemur til félagsins frá Hull og gerir þriggja ára samning.
Hull hafði áður samþykkt 1,5 milljón punda tilboð WBA í þennan 27 ára gamla markvörð sem hefur leikið 277 leiki með Hull síðan hann kom frá Aston Villa árið 2003 á 50 þúsund pund.
,,Ég er hæstánægður með að geta boðið Boaz velkominn til félagsins,\" sagði Roberto Di Matteo stjóri WBA.
,,Hann kemur til okkar á góðum aldrei og með góða reynslu eftir að hafa hjálpað Hull að komst í efstu deild og hefur verið síðustu tvær leiktíðir þar.\"
Hull skuldar 25 milljónir punda, þar af 10 milljónir sem önnur félög eiga inni hjá þeim, svo Adam Pearson yfirmaður knattspyrnumála ákvað að reyna að afla fjár í sumar.

Heimild: BBC