31.07.10 - 08:26
Hafliði Breiðfjörð
Sami Khedira til Real Madrid (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Real Madrid staðfesti í gær að þýski landsliðsmaðurinn Sami Khedira sé genginn til liðs við félagið frá Stuttgart en kaupverð var ekki gefið upp.
Khedira sem er 23 ára gamall vakti athygli á Heimsmeistaramótinu í sumar. Hann skrifaði undir fimm ára samning vð Real Madrid.
Fredi Bobic framkvæmdastjóri Stuttgart sagði að félagið hafi ekki viljað láta leikmanninn fara: ,,En við getum skilið óskir Sami um að halda ferli sínum áfram hjá Real. Við óskum honum alls hins besta í nýrri áskorun í Madríd.\"
Khedira verður önnur stóru kaup Jose Mourinho í stjórastól Real Madrid, áður hafði Angel di Maria komið frá Benfica. Hinsvegar hefur félagið látið Raul og Guti fara frá sér.
Khedira hafði verði orðaður við Chelsea en hann á að baki 12 landsleiki fyrir Þýskaland, þann fyrsta fyrir innan við ári síðan.

Heimild: BBC