Fotbolti.net
31.07.10 - 11:34
Hafliði Breiðfjörð

Sandor Zoltan Forizs í Fjarðabyggð (Staðfest)

Sandor Zoltan Forizs leikur með Fjarðabyggð út tímabilið.

Sandor Zoltan Forizs leikur með Fjarðabyggð út tímabilið.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Sandor Zoltan Forizs er genginn til liðs við Fjarðabyggð og hefur þegar fengið leikheimild með sínu nýja félagi.

Hann kemur til félagsins frá Samherjum sem leika í 3. deildinni en þangað hafði hann komið frá KA fyrir tímabilið og lék þar sjö leiki í deild og bikar og skoraði eitt mark.
Sandor er reyndur varnarmaður frá Ungverjalandi en hann lék fimmtán leiki í fyrstu deildinni síðastliðið sumar.

Sandor kom hingað til lands árið 2003 og lék þá með Leiftur/Dalvík en hann hefur einnig leikið með KS/Leiftri hér á landi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.