Ívar Orri lék sinn síðasta leik fyrir HK þetta tímabilið - Ómar vill miðjumann

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Miðjumaðurinn Ívar Orri Gissurarson er á leið til Bandaríkjanna í háskóla og lék í gær sinn síðasta leik þetta sumarið með HK.
„Við erum að skoða að bæta við okkur manni, ég hef sagt það í síðustu viðtölum. Þetta var síðasta leikurinn hans Ívars Orra fyrir okkur. Við þurfum að bæta við okkur miðjumanni, það er á hreinu. Við erum bara að vinna í því, ekkert klárt fyrr en það er undirritað og tilkynnt," sagði Ómar Ingi Guðmundsson, þjálfari HK, í viðtali við Fótbolta.net í gær.

Lestu um leikinn: KA 1 - 1 HK
Ívar Orri er tvítugur miðjumaður sem hefur byrjað sex leiki í sumar og komið fimm sinnum inn á sem varamaður. Hlutverkið hans stækkaði þegar leið á tímabilið og var hann í byrjunarliðinu í sex síðustu leikjum.
Eyþór Aron Wöhler missti í gær af öðrum leiknum í röð vegna tognunnar.
„Það munaði litlu að hann hefði getað verið með í dag, hann er með smá eymsli aftan í læri. Núna er aðeins lengri pása þannig að hann ætti að vera klár eftir Verslunarmannahelgi," sagði Ómar.