31.10.10 - 17:45
Hafliði Breiðfjörð
Hörður Sveinsson í Val - Sigurbjörn framlengir (Staðfest)

Sigurbjörn Hreiðarsson og Hörður Sveinsson eftir undirskriftina í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Framherjinn Hörður Sveinsson er genginn til liðs við Val frá Keflavík og skrifaði undir þriggja ára samning við Hlíðarendafélagið rétt í þessu. Við sama tilefni var tilkynnt að Sigurbjörn Hreiðarsson verður áfram leikmaður liðsins en kemur einnig inn í þjálfarateymið.
Hörður Sveinsson er 27 ára gamall framherji sem er uppalinn hjá Keflavík þar sem hann hefur spilað allan sinn feril nema árin 2006 og 2007 er hann lék í Danmörku .
Hann skoraði sjö mörk í 18 leikjum Keflavíkur í sumar en hefur í heildina spilað 134 leiki fyrir meistaraflokk félagsins og skorað í þeim 38 mörk. Hann hefur leikið 13 landsleiki fyrir yngri landslið Íslands og skorað í þeim þrjú mörk.
Sigurbjörn Hreiðarsson sem er 35 ára gamall skrifaði undir tveggja ára samning við Val. Hann stefnir á að spila á fullu með liðinu í sumar en kemur einnig inn í þjálfarateymi félagsins með Kristjáni Guðmundssyni og Frey Alexanderssyni.
Sigurbjörn hefur leikið með Val síðan árið 1992. Hann lék 20 leiki með liðinu í deild og bikar í sumar og skorað tvö mörk. Hann hefur allan sinn feril leikið með Val utan ársins 2000 sem hann lék í Svíþjóð og í upphafi ferilsins er hann var í Dalvík.
Rætt verður við Sigurbjörn og Hörð í sjónvarpinu hér á Fótbolta.net í kvöld.