Fotbolti.net
31.10.10 - 21:31
Hafliði Breiðfjörð

Guðmundur Benediktsson í Breiðablik (Staðfest)

Guðmundur Benediktsson í Breiðablik (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur

Guðmundur Benediktsson hefur verið ráðinn þjálfari hjá Íslandsmeisturum Breiðabliks en hann mun koma að þjálfun í meistara, öðrum, þriðja og fjórða flokki karla hjá félaginu.

Einar Kristján Jónsson formaður knattspyrnudeildar Breiðabliks staðfesti þetta við Fótbolta.net í kvöld.
Guðmundur kemur þar með meðal annars inn í þjálfarateymi meistaraflokks með Ólafi Kristjánssyni þjálfara og Úlfari Hinrikssyni sem hefur verið aðstoðarþjálfari.

Guðmundur steig sín fyrstu skref í meistaraflokksþjálfun á síðasta tímabili þegar hann þjálfaði Selfyssinga en honum tókst ekki að bjarga liðinu frá falli.

Eftir tímabilið ákvað Selfoss að nýta sér uppsagnarákvæði í samningi Guðmundar en nú er ljóst að hann mun starfa hjá Blikum á næsta tímabili.

Á sínum tíma átti Guðmundur farsælan feril með Þór, KR og Val auk þes sem hann reyndi fyrir sér í atvinnumennskunni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.