31.10.11 - 12:23
Magnús Már Einarsson
Hilmar Rafn í Val (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir

Valsmenn hafa fengið framherjann Hilmar Rafn Emilsson til liðs við sig frá Haukum.
Hilmar Rafn, sem er 25 ára, skrifaði undir tveggja ára samning við Val í hádeginu í dag.

Samningur Hilmars við Hauka rennur út um áramót og því var honum frjálst að semja við Val.
Hilmar skoraði sjö mörk í sextán leikjum í fyrstu deildinni í sumar en hann missti af hluta tímabilsins vegna meiðsla.
Samtals hefur hann skorað 42 mörk í 117 leikjum með Haukum síðan hann lék sinn fyrsta meistaraflokksleik árið 2004.
Hilmar Rafn er annar leikmaðurinn sem Valsmenn fá til sín í haust en Hafsteinn Briem kom einnig til félagsins frá HK á dögunum. Þá verður Brynjar Kristmundsson einnig áfram í herbúðum Vals eftir að hafa verið í láni frá Víkingi Ólafsvík síðari hluta sumars.