31.10.11 - 19:11
Elvar Geir Magnússon
Albert Brynjar Ingason í FH (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Albert Brynjar Ingason hefur ákveðið að ganga til liðs við FH og gerir tveggja ára samning við félagið. Frá þessu er greint á stuðningsmannasíðu Hafnarfjarðarliðsins.
Samningur Alberts við uppeldisfélag hans, Fylki, rann út eftir tímabilið. Hann var í viðræðum við Fylki, Val og FH en síðastnefndna liðið varð fyrir valinu.
Albert skoraði 9 mörk í 22 leikjum með Fylki í Pepsi-deildinni í sumar.
Hann fetar í fótspor afa síns Alberts Guðmundssonar sem þjálfaði eitt sinn hjá FH og föður síns Inga Björns Albertsonar sem spilaði og þjálfaði FH.
Hann er annar leikmaðurinn sem gengur í raðir FH síðan tímabilinu lauk en fyrir helgi var tilkynnt að markvörðurinn Róbert Örn Óskarsson væri kominn aftur í Kaplakrikann.