Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   sun 19. febrúar 2017 13:28
Kristófer Kristjánsson
Ítalía: Inter upp í fjórða sætið
Gabriel skoraði markið
Gabriel skoraði markið
Mynd: Getty Images
Bologna 0 - 1 Inter
0-1 Gabriel ('81 )

Fyrsta leik dagsins í ítölsku úrvalsdeildinni er nú lokið.

Bologna tók á móti Inter á Renato Dall'Ara vellinum en heimamenn eru í 15. sæti með 27 stig.

Lið Inter er hinsvegar í hörku baráttu um meistaradeildarsæti og var hart barist um stigin í dag.

Það var Gabriel Barbosa, Gabigol, sem skoraði eina mark leiksins fyrir gestina þegar um 10 mínútur voru til leiksloka. Þetta var fyrsta mark Brasilíumannsins fyrir Inter.

Inter fer, með sigrinum, upp í fjórða sæti deildarinnar með 48 stig.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner