Upptaka af sjónvarpsþætti Fótbolta.net er nú komin á netið en þátturinn var á sínum stað klukkan 20:30 á fimmtudagskvöld á ÍNN.
Björn Bragi Arnarsson og Jóhann Alfreð Kristinsson úr Mið-Ísland komu í heimsókn í þáttinn en þeir eru báðir stuðningsmenn Tottenham. Þeir ræddu um sitt lið, Gylfa Þór Sigurðsson og fleira.
Í síðari hluta þáttarins var sýnt skemmtilegt innslag af uppistandi hjá Birni Braga og í kjölfarið var rætt hvernig fótbolti hefur komið við sögu í uppistandi Mið-Íslands.
Þá var rætt hvaða leikmenn og þjálfarar í heiminum gætu náð langt í uppistandi og hvaða leikmenn og þjálfarar myndu vera lélegir í þessum bransa.
Þáttastjórnandi er Magnús Már Einarsson.
Gestir þáttarins:
Björn Bragi Arnarsson
Jóhann Alfreð Kristinsson
Sjá einnig:
Smelltu hér til að sjá upptöku úr fyrsta þætti (5. febrúar)
Smelltu hér til að sjá upptöku úr öðrum þætti (12. febrúar)
Smelltu hér til að sjá upptöku úr þriðja þætti (19. febrúar)
Smelltu hér til að sjá upptöku úr fjórða þætti (26. febrúar)
Athugasemdir