Ísland 6-0 Færeyjar
Mörk Íslands: Tómas Óli Kristjánsson (2), Björgvin Brimi Andrésson (2), Sölvi Snær Ásgeirsson og sjálfsmark.
Ísland mætti Færeyjum á UEFA Development Tournament á Gíbraltar í dag en leiknum lauk með auðveldum sigri Íslands.
Þetta er annar sigur hjá Íslenska landsliðinu á mótinu en fyrsta leiknum lauk með 4-0 sigri gegn Gíbraltar.
Björgvin Brimi Andrésson skoraði tvennu en hann er yngri bróðir Benónýs Breka Andréssonar, leikmanns KR. Tómas Óli Kristjánsson gerði einnig tvennu og þá skoraði Sölvi Snær Ásgeirsson eitt mark. Eitt markanna var síðan sjálfsmark hjá Færeyjum.
Lokaleikur liðsins á mótinu verður gegn Litháen á þriðjudaginn kemur.
???????? Byrjunarlið U16 karla sem mætir Færeyjum í dag kl. 09:00 á UEFA Development Tournament.
— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) March 16, 2024
Our U16 men's starting lineup against the Faroe Islands.#fyririsland pic.twitter.com/1RJj7h5M0n