Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
   þri 19. mars 2024 16:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Werner vill vera lengur hjá Tottenham - Ákvæði í samningnum
Timo Werner.
Timo Werner.
Mynd: EPA
Timo Werner hefur mikinn áhuga á því að vera lengur hjá Tottenham en bara út þetta tímabil.

Þýski fréttamaðurinn Florian Plettenberg segir frá þessu.

Werner gekk í raðir Tottenham á láni frá RB Leipzig í janúarglugganum. Hann er búinn að skora tvö mörk og leggja upp tvö í átta leikjum með Spurs.

Tottenham samdi um að geta keypt hann fyrir 17 milljónir evra þegar hann kom á láni en ef félagið ætlar að virkja ákvæðið þá þarf það að gerast fyrir Evrópumótið.

Það er ólíklegt að Werner verði áfram hjá Leipzig sama hvernig fer en eins og staðan er núna virðast góðar líkur á því að hann verði áfram hjá Tottenham.

Tottenham er sem stendur í fimmta sæti ensku úrvalsdeildarinnar og er að berjast um það að komast í Meistaradeildina.
Athugasemdir
banner
banner