Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
   sun 22. maí 2016 11:26
Arnar Geir Halldórsson
Heimild: SkySports 
Van Gaal: Þetta er búið
Búið
Búið
Mynd: Getty Images
Louis van Gaal virðist hafa stýrt Man Utd í síðasta skiptið í gær þegar liðið vann enska bikarinn.

Strax að leik loknum bárust fréttir af því að verið væri að ganga frá samningum við Jose Mourinho um að taka við félaginu og hafa enskir fjölmiðlar fylgst grannt með gangi mála í kjölfarið.

Þegar van Gaal yfirgaf hótel Man Utd í London nú rétt í þessu gekk fréttamaður Sky Sports á eftir honum og spurði hann út í framhaldið.

„Nei, þetta er búið," var það eina sem van Gaal hafði að segja.

Vitað er að forráðamenn Man Utd eru enn í London eftir leik gærdagsins en Mourinho er sömuleiðis staddur í ensku höfuðborginni.
Athugasemdir
banner
banner