Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
banner
   mán 25. mars 2024 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Segir Walker besta varnarmann sem hann hefur mætt - „Hef alltaf sagt þetta“
Mynd: EPA
Brasilíski sóknarmaðurinn Vinicius Junior sparaði ekki stóru orðin í viðtali eftir 1-0 sigurinn á Englandi á dögunum, en þar sagði hann Kyle Walker besta varnarmann sem hann hafi spilað við á ferlinum.

Walker og Vinicius hafa oft og mörgum sinnum mæst á vellinum en barátta þeirra entist ekki lengi á laugardag.

Englendingurinn meiddist aftan í læri eftir tæpar tuttugu mínútur og neyddist til að fara af velli.

Vinicius, sem átti þátt í sigurmarki leiksins, óskaði honum góðs bata eftir leikinn og sagði hann besta varnarmann heims.

„Þetta er mjög leiðinlegt og það er það í hvert einasta skipti sem leikmaður fer meiddur af velli, ekki bara fyrir leikmanninn heldur fyrir alla þá sem eru á vellinum. Við viljum spila við þá bestu og Walker, eins og ég hef alltaf sagt, er besti varnarmaður sem ég hef mætt og það eru alltaf góð einvígi okkar á milli. Hann ber mikla virðingu fyrir mér og er sú tilfinning gagnkvæm. Báðir verja sitt lið með sterkasta vilja heims,“ sagði Brasilíumaðurinn.
Athugasemdir
banner
banner
banner