Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   þri 26. mars 2024 08:31
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Wroclaw
Jóhann Berg snýr aftur í hópinn - Stefán Teitur ekki með
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
23 manna leikmannahópur Íslands hefur verið uppfærður á heimasíðu UEFA fyrir leikinn gegn Úkraínu sem fram fer í kvöld.

Ein breyting er á hópnum frá leiknum gegn Ísrael: Jóhann Berg Guðmundsson kemur inn fyrir Arnór Sigurðsson sem meiddist í leiknum.

Stefán Teitur Þórðarson var kallaður inn í hópinn á fimmtudagskvöld en hann er 24. maður í dag og er því utan hóps.

Jóhann Berg gat ekki spilað gegn Ísrael en hann hefur verið á síðustu æfingum landsliðsins og verður með fyrirliðabandið ef hann byrjar í kvöld.

Leikurinn gegn Úkraínu er úrslitaleikur um sæti á EM í sumar. Hann hefst klukkan 19:45 að íslenskum tíma og fer fram á heimavelli Slask Wroclaw í Póllandi.
Aldrei heim - Formaðurinn í takkaskónum
Athugasemdir
banner