Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
   mið 27. mars 2024 14:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Geremi eyðilagður eftir að hann komst að því að hann ætti ekki börnin
Geremi hér í baráttu við Ronaldinho.
Geremi hér í baráttu við Ronaldinho.
Mynd: Getty Images
Fyrrum fótboltamaðurinn Geremi hefur ákveðið að sækja um skilnað frá eiginkonu sinni eftir að hann komst að því að börn sem hann hélt að hann ætti með henni voru í raun ekki hans.

The Sun komst yfir dómsskjöl í heimalandi Geremi, Kamerún, þar sem fram kemur að fótboltamaðurinn fyrrverandi hafi komist að því í gegnum DNA-próf að börnin voru hans ekki hans.

Geremi taldi sig eiga tvíbura með konunni en það kom í ljós að fyrrverandi eiginmaður konunnar átti börnin.

Í skjölunum segir að Geremi haldi því fram að konan hafi eyðilagt hjónaband þeirra með ítrekuðum lygum. Fréttirnar um að börnin - sem hann hefur alið upp - séu ekki hans hafi eyðilagt hann andlega.

Geremi spilaði með Chelsea frá 2003 til 2007 og þá lék hann einnig með Real Madrid og Newcastle. Hann spilaði þá 118 A-landsleiki fyrir Kamerún.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner