Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
   mið 27. mars 2024 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Mainoo bestur í fyrsta byrjunarliðsleiknum
Mynd: Enska fótboltasambandið
Kobbie Mainoo, leikmaður Manchester United og enska landsliðsins, var valinn maður leiksins í fyrsta byrjunarliðsleik sínum með landsliðinu í gær.

Mainoo, sem er 18 ára gamall, var kallaður inn í hópinn nokkrum dögum fyrir leikinn gegn Brasilíu um helgina.

Þá kom hann inn á sem varamaður en hann fékk að byrja í fyrsta sinn í 2-2 jafnteflinu gegn Belgíu í gær.

Frammistaða hans var sú besta í leiknum en eftir leikinn fékk hann verðlaun fyrir að vera valinn besti leikmaður Englands.

Mainoo hefur verið að gera frábæra hluti með United síðustu mánuði og er hann svo sannarlega að uppskera eins og hann sáir.


Athugasemdir
banner
banner
banner