Fotbolti.net
01.01.11 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Adrian Lopez til Wigan (Staðfest)

Adrian Lopez til Wigan (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Spænski varnarmaðurinn Adrian Lopez hefur gert samning við Wigan út þetta tímabil.

Þessi 23 ára gamli leikmaður yfirgaf Deportivo La Coruna í lok síðasta tímabils en hann hefur æft með Wigan frá því í sumar.
Lopez, sem fær treyju númer 24 hjá Wigan, hefur núna fengið leikheimild með enska félaginu.

,,Það er frábært að Adrian geti loksins fengið að spila með Wigan,\" sagði Roberto Martinez stjóri Wigan.

,,Hann er varnarmaður sem er mjög rólegur undir pressu og hann les leikinn frábærlega.\"

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.