Fotbolti.net
01.02.11 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Ricardo til Leicester (Staðfest) – Skuldar Sven síðan á EM

Ricardo ver frá Vassell.

Ricardo ver frá Vassell.

Canon

Mynd: Getty Images

Sven-Goran Eriksson, stjóri Leicester hefur gert samning við portúgalska markvörðinn Ricardo.
Ricardo hefur æft með Leicester að undanförnu eftir að hann yfirgaf Real Betis í síðasta mánuði. Þessi 34 ára gamli leikmaður hefur núna gert samning við Leicester út tímabilið.

Eriksson kannast vel við hann þar sem Ricardo var hetja Portúgala þegar liðið sló Englendinga út í vítaspyrnukeppni á EM 2004 og HM 2006 þegar Eriksson var við stjórnvölinn.

,,Hann skuldar mér greiða frá því árið 2004 og 2006 svo ég er viss um að hann mun standa sig vel hjá okkur,” sagði Eriksson léttur í bragði.

Darius Vassell, framherji Leicester, ætti einnig að muna eftir Ricardo þar sem markvörðurinn varði vítaspyrnu frá honum í vítaspyrnukeppni á EM 2004 og það eftir að hafa tekið af sér markmannshanskana.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.