Fotbolti.net
01.04.11 - 13:08
Elvar Geir Magnússon

Hannes Þ. Sigurðsson í FH (Staðfest) - Bjarki áfram með FH

Hannes við undirskriftina í Kaplakrika í dag.

Hannes við undirskriftina í Kaplakrika í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

FH-ingar hafa fengið góðan liðsstyrk því sóknarmaðurinn Hannes Þ. Sigurðsson hefur gert samning um að spila með þeim í sumar. Þetta var tilkynnt á blaðamannafundi nú rétt í þessu þar sem einnig var tilkynnt að Bjarki Gunnlaugsson muni spila áfram með FH eins og síðasta sumar.
Hannes er 28 ára en lék með FH-ingum tímabilið 2001 og fór síðan í atvinnumennsku þar sem hann hefur leikið með Viking Stafangri, Stoke City, Bröndby og svo hefur hann verið í herbúðum Sundsvall í Svíþjóð síðustu þrjú ár.

Hannes á þrettán A-landsleiki að baki fyrir Ísland. Hann semur við FH út komandi leiktíð og sagði á fréttamannafundinum að hann væri kominn til að spila með liðinu og myndi ekki hætta við ef eitthvað annað tækifæri kæmi upp fyrir mót.

FH liðið mun á morgun fara til Portúgals í æfingaferð þar sem Hannes verður með í för en í ferðinni mun liðið meðal annars mæta Landskrona sem Henrik Larsson þjálfar.

Á fréttamannafundinum kynntu FH-ingar einnig aðra leikmenn sem hafa komið til félagsins í vetur. Þá Hólmar Örn Rúnarsson og Alen Sutej sem komu úr Keflavík, Gunnar Kristjánsson úr KR, Ingimar Elí Hlynsson frá KS/Leiftri og Emil Pálsson frá BÍ/Bolungarvík auk Sverris Garðarssonar sem hefur tekið skóna fram að nýju.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.