Fotbolti.net
01.04.11 - 15:26
Magnús Már Einarsson

Bogi Rafn og Jack Giddens í Grindavík (Staðfest)

Bogi Rafn Einarsson.

Bogi Rafn Einarsson.

Canon

Mynd: Víkurfréttir

Grindavík hefur samið við varnarmanninn Boga Rafn Einarsson og markvörðinn Jack Giddens.

Bogi Rafn er uppalinn Grindvíkingur en þessi 22 ára gamli leikmaður getur leikið bæði sem miðvörður og bakvörður.

Í fyrra var Bogi Rafn á mála hjá Njarðvík þar sem hann lék þrjá leiki í fyrstu deildinni.

Alls hefur Bogi spilað 33 leiki með Grindavík í deild og bikar og skorað í þeim eitt mark.
Giddens er 18 ára gamall Englendingur en hann er á elsta ári í öðrum flokki.

Giddens var síðast á mála hjá Leyton Orient en hann mun berjast við Óskar Pétursson um markvarðarstöðuna hjá Grindavík og fylla skarðið sem Rúnar Dór Daníelsson skyldi eftir sig þegar hann fór í Víði Garði á dögunum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.