01.04.11 - 17:46
Magnús Már Einarsson
Birgir Hrafn í Víking Ólafsvík (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson
Víkingur Ólafsvík hefur fengið miðjumanninn Birgi Hrafn Birgisson til liðs við sig frá Stjörnunni.
Birgir Hrafn hefur leikið með Stjörnunni undanfarin þrjú ár en sumarið 2009 skoraði hann eitt mark í átján leikjum í Pepsi-deildinni.
Í fyrra kom Birgir Hrafn lítið við sögu hjá Garðbæingum en hann spilaði samtals þrjá leiki í Pepsi-deildinni.
Birgir er uppalinn hjá Breiðablik en hann þekkir til hjá Ólafsvíkingum því hann lék ellefu leiki með Víkingi í fyrstu deildinni árið 2007.
Þessi 25 ára gamli leikmaður gæti leikið með Víkingi þegar liðið mætir Leikni R. í Lengjubikarnum á mánudaginn.