Fotbolti.net
01.09.23 - 11:47
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Liverpool hafnaði svimandi tilboði í Salah samstundis

Liverpool hafnaði svimandi tilboði í Salah samstundis
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Liverpool hafnaði í dag 100 milljóna punda tilboði í Mo Salah frá Al Ittihad í sádi-arabísku deildinni.

Tilboðið var munnlegt samkvæmt heimildum The Athletic. 100 milljónir punda var fyrsta greiðsla og ofan á það voru 50 milljónir punda í árangurstengdum greiðslum.

Tilboðinu var hafnað samstundis, Liverpool vill ekki selja. Þetta var fyrsta tilboðið sem Liverpool fær í Salah eftir að sögurnar um áhuga frá Sádi byrjuðu að heyrast.
Tilboðið barst í gærkvöldi í vinsamlegu símtali til Mike Gordon sem er ráðamaður hjá Liverpool.

Salah er 31 árs og Liverpool vll alls ekki selja hann. Al Ittihad hefur ennþá mikinn áhuga og gæti komið nýtt tilboð í framhaldinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.