Fotbolti.net
01.09.23 - 19:41
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Jói útherji

Mason Greenwood til Spánar?

Mason Greenwood.

Mason Greenwood.

Canon

Mynd: EPA

Framtíð Mason Greenwood er í óvissu þar sem það er ljóst að hann verður ekki áfram hjá Manchester United.
Greenwood var handtekinn í byrjun árs í fyrra og ákærður fyrir af lögreglu fyrir tilraun til nauðgunar og ofbeldi í garð kærustu sinnar. Málið var látið niður falla fyrr á þessu ári en þó telja margir að ljóst sé að Greenwood sé sekur um kynferðisofbeldi.

Hann verður ekki áfram í herbúðum Man Utd þó kærurnar hafi verið felldar niður.

Greenwood var orðaður við Lazio á Ítalíu fyrr í dag en það gekk ekki eftir. Núna segir John Cross hjá Mirror frá því að Getafe á Spáni sé að reyna að fá hann á láni.

Það verður svo sannarlega áhugavert að sjá hvað gerist á næstu klukkutímum en Getafe er víst að reyna.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.